EM ER HAFIÐ OG ÞAÐ ER DJÚPT Á ÞVÍDaniafólkið

Dania Spil A/S sparkaði EM leik í gang í aðdraganda EM eins og núbúandi Daniamenn vita. Það er hart tekist á og tæklað upp að mitti í leikjum dagsins alla daga. Dania Spil þykir miður að ekki var haft samband við Bensann en hann hefði hvort sem er bara tapað. Honum er samt að sjálfsögðu boðið á sigurhátíð og verðlaunaafhendingu í byrjun september þegar æfingar hefjast eftir sumafrí vegna lykilstöðu sinnar innan leikmannahóps Dania Spils.
Þar sem undirritaður var talinn hafa mesta reynslu í umsýslu lausafjár og reksturs skyndihappdrætta og spilaleikja var honum falin umsjón með verðlaunafé, stigastalningu og uppfærslu mótagengis spilara. Þá mun staða efstu manna verða birt nokkuð reglulega til að menn viti hvern á að styðja í leikjum dagsins (hint:Þjóðverja allirsaman nú). Takamarkið er að birta stöðu annan hvern dag hið minnsta.

Þá að máli málanna; stöðunni eftir leiki helgarinnar.
Óskar hefur 1+3+1 stig og því samtals 5 stig
Þór hefur 1+1+1 stig og því samtals 3 stig
Bylgja er með 1+1 sig og því samtals 2 stig
(B. keppir samt einungis í innanhúsviðureign í neðra því hún borgaði ekki í pottinn og er því bara með hér til að gera stigatöfluna dramatískari)
Sigfús hefur 1 stig og því samtals 1 stig
Lokið er fjórum leikjum í mótinu.
Mönnum er bent á að fylgjast með reglulega hér á síðunni og þátttakendum sem og öðrum gestum síðunnar er að sjálfsögðu heimilt að hæðast að og/eða gleðjast með spilurum eða hvetja.
Til dæmis mætti núna óska Óskari til hamingju með góða byrjun og e.t.v. gera eitthvað grín að Sigfúsi sem situr eftir í startinu (nokkuð auðvelt skotmark sá gamli). Það er samt ekkert vit í því og miklu nær að kalla Óskar grísara, Þór nægir að kalla Tottenham (er og verður alltaf um miðja deild eins og sést glögglega hér að ofan) og minna á að lokum að það var ekki hérinn sem vann skjaldbökuna í kapphlaupinu fræga og að knattspyrnumót er maraþonhlaup en ekki spretthlaup (Sputnik var fljótur upp en jafn fljótur niður aftur), svona til að draga fram nokkra klassíska frasa til að skýra út heldur hógværa stigaskorun hjá Sigfúsi í upphafi móts.
(Þetta dæmi hér að ofan er einungis dregið upp sem dæmi um hvað segja mætti í stöðu einsog þessari og er ég alls ekki að misnota stöðu mína sem stigateljari og fréttaritari mótsins heldur er það algjör tilviljun að staðan var þessi og beitt háðið sem á eftir fylgdi var í þessa áttina;)
Game on.
S.Ö.G. í neðra.
Athugasemdir
1
Þórsarinn skrifar:
var ég ekki eini sem fékk stig í gær 9/6 ???? LOL
10. júní 2008 klukkan 08:13
2
í neðra skrifar:
jú, rétt hjá þér. Stigaskorið var svo lágt að ég nennti ekki að setja það inn því mér finnst þessi stærsta og lengsta bloggfærsla í sögu hel-bloggsins svo fín að ég vildi ekki henda henni út fyrr en eftir leikina í kvöld.
10. júní 2008 klukkan 10:53
3
Þórsarinn skrifar:
Já..Fín færsla.. Það þarf heldur ekki að vera breyta strax.
Ég vildi bara monta mig....
Ég vildi bara monta mig....
10. júní 2008 klukkan 12:29
4
sigfús örn skrifar:
Já monta þig. Til þess var líka mælst að menn gerðu það ef þeir hefðu eitthvað að monta sig yfir. Veit nú samt ekki hvort eitt stig sé eitthvað til að monta sig yfir;) ég er allavega ekkert mjög montinn með mitt eina hehe. Það kemur ný færsla eftir leikina í kvöld.
10. júní 2008 klukkan 13:06