Žaš er aš koma comeback! EM part5Daniafólkiš


Ég sat i rólegheitunum og huggaði mig með einum köldum, svona til að kæla mig niður á enn einum níutíumínutna þjófnaðinum þegar ég áttaði mig á að ég gat sett inn fullt af stigum. Ef spanjólarnir hefðu látið markið í friði í tvær mínútur í viðbót hefði Dieter verið búinn að berjast á topp deildarinnar en hann situr nú fastur í þriðja sæti eftir að ljóst er hvaða lið komust í átta liða úrslit.
[Goal.jpg]
Staðan í keppni Dania spils er orðin svona:
Þór hefur hlotið 18 stig eftir riðlakeppnina og svo 24 fyrir að koma 6 liðum í 8 liða úrslit. Það gera samtals 42 stig í heildina.

Óskar hefur hlotið 15 stig eftir riðlakeppnina og svo 24 stig fyrir að koma 6 liðum í 8 liða úrslit. Það gera samtals 39 stig í heildina.

Sigfús hefur hlotið 10 stig eftir riðlakeppnina og svo 28 stig fyrir að koma 7 liðum í 8 liða úrslit. Það gera samtals 38 stig í heildina.

Bylgja hefur hlotið 13 stig eftir riðlakeppnina og svo 20 stig fyrir að koma 5 liðum í 8 liða úrslit. Það gera samtals 33 stig í heildina.

Þórsarinn hefur semsagt hrifsað toppsætið í deildinni til sín, eftir að riðlakeppni er lokið og ljóst hvaða lið spila í 8 liða úrslitum. Þýskarinn átti samt besta árangur inn í 8 liða úrslit, þar sem Svisslendingum einum var ofaukið í hans spá sem Tyrkir klóruðu út alls ófyrirséð. Nú fer enn frekar að draga til tíðinda og líklegt að Portúgalir haldi á örlögum Þórsarans í hendi sér. Þeir eru það sem geri hans spá ólíka Þýskarans og Óskarsins og líklegt að árangur þeirra "meiki eða breiki" þetta fyrir kallinn.

Ef menn eru í stuði og vilja halda sér heitum fram að næsta leik þá er
hér linkur á síðu þar sem menn hafa sett inn myndbönd af 50 bestu mörkum allra tíma (að mati einhverra gaura). Greinin er í þremur hlutum.

Nú skal setja hann í samúel (ekki í Samúel samt!
Michael

Skrifa athugasemd

Auglżsing