Ertu að djóka.. Var ekki búinn að sjá þetta. Var svo viss um að ég væri búinn að tapa.
Það verður ljúft að renna niður bjórnum og þefa af peningunum sem ég hef unnið.
Vonum að gengið haldist óbreytt. Þá verður vinningurinn miklu hærri. Og sigur því sætari
Kv frá Bílalandi Sævarhöfða (zzzzz.... ekkert að gera)
Þór Örn Atlason
Silfur er víst súrast málma.Daniafólkiğ

Bang! .. og mark var það sem gerðist snemma leiks. Þjóðverjar byrjuðu af miklum krafti, pressuðu fram og ætluðu sér leikin strax í upphafi. Þeir nýttu hinsvegar ekki meðbyrinn sem þeir höfðu í uphafi og hleyptu spnjólunum inn í leikinn sem þeir þáðu með þökkum og löbbuðu með alla leiðina í bankann. Þýska vörnin hefur sjalden virkað eins þung og slöpp og þeir áttu ekki roð í Torres og Iniesta sem spiluðu þá úr pungsveittum stuttbuxunum oftar en einusinni og oftar en tvisvar. Spánverjarnir voru betri næstum allan tíman eftir að þeir virtust hafa mætt of seint í leikinn.

Þetta alltasaman þýðir nokkuð margt fyrir okkar ágæta leik hér á Dania. Lokastaðan í leiknum snarsnérist næstum á haus fullkomlega og hefði gert það ef Klinsmann hefði stýrt þessu batteríi áfram. Það mjóaði munu sagði einhver og það er víst rétt hjá þeim blessaða manni. Lokastaðan í leiknum endaði með stórmeistara jafntefli sem þarf að leysa með svokölluðum "tie-braker". Aðferðin finnst mér vera afturábak þar sem það fyrsta sem ræður úrslitum er hversu marga leiki keppendur höfðu rétta í riðlakeppninni. Réttlátara (fyrir mig allavega) hefði verið að rekja keppnina afturábak þar til sundur greinir, en svona er keppnin okkar sett upp og við það verður unað, enda ekki tapsárir menn hér á Dania.
Dania Spil EM2008 deildin endaði svona:

Þór 55 stig (en fleiri 3 stig í riðlakeppninni) svo hann hlýtur 1. sæti.
Sigfús 55 stig (og engir þristar) svo hann hlýtur 2. sæti.
Bylgja 51 stig (en telst ekki með) svo hún hlýtur ekki sæti
Óskar 48 stig svo hann hlýtur 3. sæti.
Gaman er að geta þess að ef Þýskaland hefði orðið Evrópumeistari, þá hefði röðin orðið Sigfús, Bylgja, Þór og Óskar, sem er speglun á stöðunni eftir riðlakeppnina. Þetta þýðir bara að leikurinn var jafn og spennadi alla leið og þakkar undirritaður skemmtilega og jafna keppni um leið og Casillas lyftir verskuldað bikarnum góða undir soundtrackinu úr Pirates of the Carribiean (veit ekki afhverju það er með alveg).
yfir og út.
Franz
Athugasemdir
2
Şórsarinn skrifar:
30. júní 2008 klukkan 15:34
Ég óska Þórsaranum til hamingju með sigurinn, drengilega keppni hjá öllum og skemmtilegar uppfærslur og update hjá Franz, Miroslav, Michael, Dieter, Gerd, Jurgen og SOG :)
Hlakka til að halda uppá þetta í sept... þ.e.a.s. ef Þórsarinn verður ekki búinn að gleyma því :)